Einn umferðarasni enn....

Ég var á leið vestur á Snæfellsnes í morgun , þegar  bifreiðin E 32  tók fram úr mér við Laxá  í Leirársveit á óbrotinni línu.  Allt í fína en ég var samt á 100 km. hraða eða þar um bil, þetta er svartur Landcruiser og örugglega besta skinn ökumaðurinn, samt þarf hann að læra umferðarlögin upp á nýtt.

Framúrakstur á óbrotinni línu er bannaður. Mig langar líka að minna á að framúrakstur hægra megin er bannaður, nema við vinstri beygjur. Það  á alltaf að vera hægt að skipta yfir á hægri akrein án þess að hafa af því áhyggjur að einhver sé þar að aka framúr. Á hinn bóginn má benda á að ef þér finnst vera farið mikið fram úr þér hægra megin, hvernig væri að skipta um akrein? Leiðinlegt að segja en íslendingar eru ótrúlega lélegir í að virða þessar einföldu reglur sem allir aðrir virðast kunna....


mbl.is Færð og ástand vega
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Eiríkur Harðarson

ALLTOF mörgum virðist liggja LÍFIÐ á.

Eiríkur Harðarson, 24.8.2008 kl. 22:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband