3.5.2008 | 19:14
En reynum samt,
að hindra með öllum tiltækum ráðum að íslenskt almúgapakk geti verslað í matinn á lægra verði. Ég er viss um að þetta pakk mun bara éta sig feitt og verða fyrr en varir að heilbrigðisvandamáli. Það er mikið betra fyrir þjóðarbúið að nokkur kjúklingabú fái ekki verðuga samkeppni utan frá heldur en að íslendingar geti keypt sér ódýrt að éta.
Ég bendi þeim sem ekki vilja evrópska kjötvöru á að kaupa bara áfram íslenskt. Í Evrópu búa hundruðir milljóna fólks sem ekki hefur orðið meint af ketinu sem er þar framleitt, í nokkur ár var ég meiraðsegja einn af þeim :)
Spáir miklum innflutningi á kjúklingabringum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Er fólk alveg gaggagú. Nauðsynlegt er að styðja við íslenska landbúnaðarframleiðslu.
Björn Heiðdal, 4.5.2008 kl. 03:27
Hænsnarækt er ekki landbúnaður, heldur iðnaður. Það þarf hvort eð er að flytja allt til hænsnaræktar inn svo hví ekki flytja hænsnin inn reytt og vacumpökkuð? Gaggalagú!
Pétur Sig, 4.5.2008 kl. 14:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.