18.7.2008 | 21:53
Hvern langar sossum að hanga þarna í Tottenham þar sem ekkert gerist?
Ég er bara ekkert hissa á að þá langi báða burt enda Tottenham ekkert nema sýningargluggi fyrir leikmennina til að komast eitthvert annað, þar sem titlar koma á innan við 200 ára fresti..
Stjórnarformaður Tottenham kvartar yfir Ferguson og Benítez | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Enski boltinn | Facebook
Athugasemdir
Þú virðist aldeilis vel að þér í enska boltanum!
Jónas Rafnar Ingason, 18.7.2008 kl. 22:25
Hefur eitthvað lið í Englandi unnið titla á yfir 200 ára fresti? Ég skil bara ekkert hvað þú átt við, þú fyrirgefur.
Bergur Thorberg, 18.7.2008 kl. 22:45
Staðreyndin er sú að fá lið hafa unnið fleirri titla í enska boltanum en Tottenham. Og reyndar eru aðeins tvö lið sem hafa unnið titla á hverjum áratug eftir síðari heimstyrjöld, s.s frá og með 5. áratug síðustu aldar og er Spurs annað þeirra!
Jónas Rafnar Ingason, 18.7.2008 kl. 23:11
Já Jónas. Þetta er alveg rétt. Og fleiri á næstu grösum.
Bergur Thorberg, 18.7.2008 kl. 23:22
Heldur betur Bergur! Okkar tími er að renna upp. Aftur! Með eða án Berba og Keane!
Jónas Rafnar Ingason, 18.7.2008 kl. 23:26
Tottenham geta ekki rassgat, og það vita allir...Ég vildi bara ekki segja það svona skorinort til að byrja með. Keane verður meistari með Liverpool og aldrei með Tottenham, kannski ekki strax, en sooner than later.....
Pétur Sig, 18.7.2008 kl. 23:38
Við Spursarar höfum ekkert með rassgöt að gera.Það vita allir. Hafa Púlarar eitthvað með þau að gera? Ég bara spyr?
Bergur Thorberg, 18.7.2008 kl. 23:52
Það er allavega lengur síðan Liverpool vann titil en Spurs. Say no more!
Jónas Rafnar Ingason, 19.7.2008 kl. 00:01
Hvað titil unnu Tottenham síðast? Lundúnakeppni meðalliða? Ekki hafa þeir orðið evrópumeistarar nýlega og fengið evrópubikarinn til eignar afþví þeir hafa unnið hann svo oft? Hve oft hafa annars Tottenham orðið fyrir ofan Liverpool í deildinni síðastliðin 10 ár?
Pétur Sig, 19.7.2008 kl. 01:18
Carling Cup í ár, þar sem Liverpool datt út.
Bergur Thorberg, 19.7.2008 kl. 01:30
Hvað er með alla þessa Livrapóll kalla? Liðið hefur ekki karakter til að vinna Ensku Deildina. Það er ekki nóg að kaupa Torres og ætlast til að vinna allt. Amerísku eigendur Liverpool ætluðu greinilega að taka Ameríska pakkan á þetta allt og kaupa einn góðan leikmann eins og er gert í NHL eða NBL sem tekur titilinn heim fyir liðið. Það gegnur engan veginn í knattspyrnu :)
Meðalmennska, það er slagorð Liverpool :)
Einsi (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 03:44
Annars væri það frábært fyrir Enska knattspyrnu ef Spurs gætu haldið sínum bestu mönnum. Ég viðurkenni það að það væri frábært fyrir Man utd að fá Bebatov. Ég vona svo samt sannarlega að þessi minni lið nái að halda sínum leikmönnum til að styrkja deilina, okkur öllum til skemmtunar. Ég hef trú á Ramos, hann á vonandi eftir að lyfta Spurs á háa stallinn með Man Utd, Liverpoll, Gunners og Chelski, ásamt Portsmouth ásamt fleiri minni spekingum sem eru á uppleið eins og td Íslandsvininir Stoke :)
Áfram Enska Deildinn!!!
Einsi (IP-tala skráð) 19.7.2008 kl. 04:12
Tek undir hvert orð þitt Einsi.
Bergur Thorberg, 19.7.2008 kl. 10:06
Lít við af og til svona til að forvitnast, því miður fylgist ég ekkert með fótbolta svo ég get ekki lagt orð í belg.
Njóttu dagsins.
Hafdís Lilja Pétursdóttir, 20.7.2008 kl. 09:34
Ég fylgist reyndar bara með Liverpool og get ekki hangið vakandi yfir neinu öðru liði..... Er alveg sama hvað allir hinir eru að gera....:)
Pétur Sig, 20.7.2008 kl. 17:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.