Rusl...

Þurfti virkilega að flytja þennan trékassa frá útlöndum? Hvílík endaleysa.
mbl.is Héðinn býðst til að smíða ísbjarnarbúr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott!

Hann verður rekinn ekki seinna en næsta vor, sama hvað hann gerir Chel$ki maðurinn rekur hann.


mbl.is Scolari ráðinn knattspyrnustjóri Chelsea
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Búningablæti

Þetta er alveg fyrirtaksgóð mynd af nokkrum mönnum með búninga og skikkjublæti. Megi Mátturinn vera með ykkur.
mbl.is Svarthöfði á vegum félagsmanna í Vantrú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Norræna á undan áætlun

Í gær var það fréttin að Norræna var nokkrum klukkutímum á undan áætlun og fólk þurfti að bíða um borð eftir liðsauka frá Tollgæslunni í Reykjavík. Í dag er fréttin sú að Norræna var með fullt af hassi innanborðs og að löggan hafi vitað af því. Ef það er grunur eða vissa fyrirliggjandi um að það sé að koma dóp í hundruðakílóavís til einhvers staðar, afhverju er ekki búið að koma sér í stellingar fyrr? Kannski er þetta tækni sem er notuð við fíkniefnaleit á Íslandi. Er ekki hægt að hafa hreinlega einn hund um borð í Norrænu á leiðinni til landsins og hann getur þá þefað rækilega af öllu í rólegheitum og búið að handsama smyglarana þegar laggst er við bryggju? Þannig tefst för venjulegs fóks af völdum glæpamanna ekki neitt, og allir eru glaðir sem það eiga skilið. Auk þess sem fælingarmáttur þess að hafa leitarhund í skipinu er gríðarlega sterkur.
mbl.is Ekki tilviljun að hass fannst
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tilkynning til dópinnflytjenda

Í dag er tilvalið tækifæri að smygla svolitlu dópi til landsins með flugi þar sem það er verið að aka með eina fíkniefnileitarhund íslands á hestvagni austur á firði svo hann geti þefað í Norrænu. Aðrir íbúar landsins eru beðnir afsökunar á óþægindunum sem allt dópflóðið veldur þeim, en það sér það hver maður að yfirvöld eru að gera sitt besta.
mbl.is Norræna á undan áætlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ó en hræðilegt!

Það sem blessað fólkið þarf að láta yfir sig ganga.........
mbl.is Klám í vinnunni tekur á
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ruslpóstur

Alltaf gaman að fá sendan tölvupóst frá einhverjum úti í heimi sem langar að gefa manni millions of dollars. Núna um daginn sendi John Benson lögmaður frá Nígeríu mér bréf þar sem hann lofaði mér einhverjum slatta af milljónum og setti svo upp einhverja bulláætlun um að millifæra og bla bla bla..    Ég svaraði manninum svona:

" Hi Johnny my friend

I'm so glad you left me 5 million dollars in a security vault in Europe, that now I want to kiss you sooo much. How about we meet somewhere romantic like Paris, there you can give me the 5 mill in a black duffel bag in unmarked bills. We can enjoy this and maybe we can even enjoy the famous hóruhouses in Paris together?"

Við þessu kom svar strax næsta dag: "Try to contact Mark ok" 

Ekki sagði hann mér hver Mark er, eða hvernig ég á að finna hann. Nú vantar mig sumsé að finna hann Mark með millurnar mínar.... 


Er með réttu konuna í djobbið!

Brynja Davíðsdóttir hamskeri mundi gera þetta vel og vandlega. www.brynjataxidermy.com
mbl.is Ísbjörninn verður stoppaður upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Má ég fá hann?

Mig hefur svo lengi langað í svona ísbjarnarfeld fyrir framan arininn, nú vantar ekkert nema arininn.

Leiðinlegt samt að þurfti að fella bangsagreyið, en frekar hann en nokkra skagfirðinga, þeir eru víst sómafólk.


mbl.is Ísbjörninn felldur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þjóðaríþrótt breta

Svo sorglegt sem það nú er er það orðið mjög algengt hjá bretum þegar þeir koma heim úr fríinu að þeir séu spurðir "Og hvað náðirðu að fá mikið endurgreitt?" en ekki hvort það hafi verið gaman. Við erum farin að finna fyrir þessu sporti hér í íslenskri ferðaþjónustu líka. Það er hreint með ólíkindum hvað fólk getur laggst lágt. Ætli þessum manngarmi hefði þótt betra ef allt hefði farið fram á Grísku? Hann var nú einu sinni í útlöndum og þar er oftast töluð útlenska.
mbl.is Fær bætur vegna of margra Þjóðverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband